Um mig

Nafn:

Guðjón H. Finnbogason

Afmælisdagur:

5. ágúst

Heimilisfang:

Grafarvogur

Önnur vefsíða:

www.blog.central.is/bryti

Um:

Ég er kokkur og hef starfað hjá Landhelgisgæslunni frá 1991 sem bryti.

Tenglar

Vefsíðulistinn

Topplistinn
Topplistinn

Blogg

30.12.2008

Sjávarrétta Chow Mein með steiktum núðlum

Uppskrift fyrir tvo til þrjá:

100 gr. smokkfiskur
3-4 stk. skelfiskur
50-85 gr. rækjur
250 gr. Amoy Egg Noodles
2 msk. Amoy Light Soy Sauce
1 tsk. Amoy Sesame Oil
100 gr. strengjabaunir
1-2 vorlaukar, fínt skornir
1/2 eggjahvíta, létt þeytt
2 msk. hrísgrjónavín
1 tsk. salt
1 tsk. sykur
2 tsk. maísenamjöl hrært út með 1 msk. vatni
5-6 msk. olía

Hreinsið smokkfiskinn, skerið í hann krosslaga mynstur að innanverðu og skerið síðan í bita á stærð við frímerki. Setjið í pott með sjóðandi vatni. Fjarlægið bitana úr vatninu þegar þeir verða hvítir og hafa rúllast upp, skolið undir köldu vatni og látið vökvann renna af. Skerið hvern skelfisk í 3-4 bita. Afþýðið rækjurnar og skerið í 2-3 bita hverja ef þær eru stórar. Hrærið saman eggjahvítu og maísenamjölsblöndu og setjið fiskinn út í. Sjóðið núðlurnar í ca. 3-4 mín. og setjið í sigti. Látið renna á þær kalt vatn, og hrærið 1 msk. af olíu saman við. Hitið um 2-3 msk. af olíu á forhitaðri pönnu, bætið út í baununum og sjávarréttunum og steikið í 2 mín. Setjið salt, sykur, sojasósu, vín og helminginn af vorlauknum, hrærið áfram í u.þ.b. mínútu. Fjarlægið hræruna af pönnunni og geymið. Hitið afganginn af olíunni, bætið við núðlunum og helmingnum af hrærunni. Steikið í 2-3 mín. og sejtið á stóran disk. Hellið afganginum af hrærunni ofan á núðlurnar og skreytið með vorlauk og sesam olíu.

Berið fram með Amoy Chili sósu.

Sígildur réttur frá Canton héraðinu í suðurhluta Kína. Þar sem Canton var fyrsta höfnin í Kína sem opnaðist fyrir erlendum viðskiptum, gætir þar mikils fjölbreytileika í matargerð.

Skrifað 30.12.2008 kl. 0:07 af Brytinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.12.2008

Áramóta-annáll.

 

Kæru vinir.

 Árið fór ágætlega af stað eins og venja er, veðrið sæmilega gott af vetri að vera.

Við huguðum að ferð til Spánar fengum hús að láni hjá vinahjónum okkar í eina viku og fórum þangað í febrúarlok og það var bara ágætt en hefði mátt vera hlýrra en auðvitað er vetur þar á þessum tíma. Þegar fór að vora fór að koma golffiðringur og þegar vellirnir opnuðu byrjaði ég að spila ég gerði klúbbskipti og gekk í raðir GR og spila á Korpúlfsstöðum og Grafarholti og síðan vinavöllum þeirra sem eru nokkrir.Ég held að þetta sé skemmtilegasta golfsumarið mitt og þakka ég það frábærum golffélaga mínum sem ég kynnt þegar við fórum í kórferð 2007 til nokkurra Evrópulanda ég spilaði á mörgum stöðum á landinu,völlurinn á Hólmavík er kannski sá sérstakasti en samt gaman að spila hann.Við notuðum þann tíma sem við áttum saman til að ferðast innanlands með tjaldvagninn og fórum  norður á Strandir með Jóni og Lillu vinum okkar úr Mosó,helgi á Varmalandi og aðra á Hellishólum viku í bústaðnum þeirra Ingu og Konna og fleiri stöðum þegar vel viðraði..Brúðkaup var á árinu Sibba dóttir okkar og Friðgeir Gíslason geingu í hjónaband í Garðakirkju og var það frábær stund og flott veisla á eftir góður dagur það.Tvær utanlandsferðir voru farnar á árinu áttu að vera þrjár en hætt við þá síðustu.Skrokkurinn á mér er farinn að gefa sig eitthvað því ég þurfti að fara í tvær aðgerðir á árinu í byrjun árs fór ég í bakaðgerð númer þrjú og í desember í hnéðagerð.

Ekki hefur fjölskyldan stækkað á árinu,en allir heilir eftir bankahrunið og ekki tapað meir en aðrir og ekki verið að velta sér uppúr því.Við horfum fram á næsta ár bjartsýn um að halda heilsu og vinnu þá er mikið fengið.

Skrifað 27.12.2008 kl. 0:00 af Brytinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.12.2008

Pizza með Mozzarella, hvítlauk og nautahakki

Uppskrift fyrir tvo til fjóra:

1 tilbúinn pizzabotn (14"-16";)
450 gr. nautahakk
125 gr. Galbani Santa Lucia Mozzarella ostur, niðursneiddur
2-3 plómutómatar, saxaðir
1 hvítlauksrif, kramið
1 tsk. salt
1 tsk. svartur pipar
2 msk. olía

1. Forhitið ofninn í 230°C. Setjið pizzabotninn á plötu með bökunarpappír.

2. Hitið olíuna á pönnu við miðlungs hita og steikið hvítlaukinn þar til hann verður gylltur að lit.

3. Bætið nautahakkinu út í og steikið í 8 til 10 mín. Hellið vökvanum af og bætið tómötunum, salti og pipar út í.

4. Setjið nautahakksblönduna ofan á pizzabotninn. Setjið Mozzarella ostinn ofan á. Bakið í 12 til 15 mín., eða þar til osturinn er bráðnaður. Berið fram strax.

Skrifað 19.12.2008 kl. 16:49 af Brytinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.12.2008

Bakaður fiskur í ofni m/ grænmeti

 

 

Fiskur skorinn í teninga
Knorr fiskikrydd
Olía

ferskir sveppir
gulrætur
brokkolí
grænmetisteningur

Léttur sveppasmurostur
mjólk
kjötteningur


Eldfastform er smurt með olíu
Fiskur skorinn í teninga, kryddaður með Knorr fiskikryddi og settur í eldfasta formið.

Ferskir sveppir og gulrót skornið í sneiðar og brokkolí bitað niður. Grænmetið er síðan steikt í olíu á pönnu og grænmetisteningi bætt út í. Grænmetið er síðan látið krauma í eigin safa í smá stund undir loki.

Sveppasmurostur er bræddur í mjólk og kjötkrafti bætt út í.

Grænmetið er síðan sett yfir fiskinn og sósan þar yfir. Þetta er síðan bakað í ofninum þar til vel er farið að krauma í fiskinum og er þá ostur settur yfir réttinn.

Gott er að hafa Hatting brauðbollur með þessu, kartöflur eða hrísgrjón

Skrifað 12.12.2008 kl. 20:11 af Brytinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.12.2008

Kjúklinga Fajitas









 Uppskrift fyrir fjóra:

450 gr. kjúklingabringur, skornar í lengjur (einnig má nota nautakjöt)
4 stk. Santa Maria Wrap Tortilla (10")
2 litlar rauðar eða grænar paprikur, skornar í lengjur
1 lítill laukur, niðurskorinn
3 hvítlauksrif, niðurskorin
1 1/4 tsk. cumin krydd
1 tsk. chilli krydd
1 krukka Santa Maria salsasósa
Olía til steikingar

Meðlæti:
Sýrður rjómi, guacamole, rifinn ostur og ólífur.

Hitið olíu á pönnu. Steikið paprikuna, laukinn og hvítlaukinn þar til paprikan er orðin mjúk og laukurinn gylltur að lit.

Setjið kjúklinginn út á pönnuna, ásamt cumen og chilli kryddinu. Steikið þar til kjötið er ekki lengur bleikt að lit. Hellið salsasósunni út á pönnuna og látið malla þar til kjúklingurinn er steiktur í gegn.

Hitið tortillurnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðunum. Fyllið tortillurnar með kjúklingafyllingunni. Bætið meðlæti að eigin vali ofan á. Berið fram strax.

Skrifað 5.12.2008 kl. 22:46 af Brytinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.12.2008

Humar á spjóti með hráskinku

10 stk. humar
10 sneiðar hráskinka, t.d. Jamon Iberico eða El Pozo Serrano
Ólífuolía
Salt og pipar

Takið humarinn úr skelinni, t.d. með því að sjóða örstutt í vatni, saltið örlítið og piprið. Vefjið humarinn með sneið af skinkunni. Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið humarinn á miðlungs hita í 3-4 mín., takið pönnuna af hitanum, veltið humrinum við og látið steikjast í 1-2 mín. Stingið spjóti í gegnum humarinn og berið fram sem "tapas".

Skrifað 5.12.2008 kl. 22:43 af Brytinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.12.2008

Súkkulaðihálfmánar með valhnetum og kókosmjöli

 







 
Uppskrift fyrir tíu:

10 stk. Santa Maria Wrap Tortilla
250 gr. súkkulaði
65 gr. valhnetur, saxaðar
45 gr. kókosmjöl
1 egg, þeytt með 2 tsk. af vatni
Olía
Flórsykur til skreytingar

1. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Setjið súkkulaðið síðan í skál ásamt valhnetunum og kókosmjölinu og blandið saman.

2. Skiptið súkkulaðiblöndunni á milli tortillanna; setjið blönduna í miðju hverrar tortillu. Penslið brúnir tortillanna með eggjablöndunni og brjótið síðan í tvennt svo myndist hálfmáni, þrýstið brúnunum saman.

3. Hitið olíuna á pönnu. Steikið hálfmánana á hvorri hlið, þar til gylltir að lit. Leggið á eldhúspappír.

4. Þegar hálfmánarnir eru orðnir volgir viðkomu, stráið flórsykri yfir til skreytingar. Berið fram strax.

Skrifað 2.12.2008 kl. 21:38 af Brytinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.12.2008

Súkkulaðibomba með hnetum

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 24
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 37040
Samtals gestir: 14710
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 13:45:57