|
Eldra efni Um mig Nafn: Guðjón H. FinnbogasonTölvupóstfang: gudjonf@itn.isAfmælisdagur: 5. ágústHeimilisfang: GrafarvogurÖnnur vefsíða: www.blog.central.is/brytiUm: Ég er kokkur og hef starfað hjá Landhelgisgæslunni frá 1991 sem bryti.Tenglar
Vefsíðulistinn Topplistinn |
Blogg29.4.2009Pönnusteik úr lambalæri
Fyrir 6. 1500 gr lambalærisvöðvar. Olía til steikingar Kryddblanda 1 msk rósmarin 1 msk oregano 1 msk basil 1 msk timian ½ tsk cayennepipar 1 msk salt ný malaður pipar
Kjötið er skorið í sneiðar og barið létt, kryddi stráð yfir rétt fyrir steikingu. Kjötið er steikt á báðum hliðum á snarpheitri pönnu, látið hvíla á pönnunni í ca. 5 mín. Ef vöðvarnir eru steiktir heilir er þeim lokað á pönnu og þeir settir inn í 180°C heitan ofn og steiktir áfram í ca 20 mín eða þar til kjarnhiti hefur náð 65 °C. 26.4.2009Ofnbakaður plokkfiskur
100 gr smáttskorinn laukur 100 gr smjör 100 gr hveiti 5 dl mjólk 500 gr soðnar kartöflur 500 gr soðinn fiskur salt og pipar
Hitið laukinn í smjörinu þar til hann er orðinn glær, stráið hveitinu yfir og hrærið vel saman. Bætið mjólkinni smátt og smátt saman við og látið sjóða. Verið búin að skera kartöflurnar og fiskinn hæfilega smátt, og setjið út í sósuna og hitið. Kryddið með salti og pipar. Setjið í eldfast mót, lagið hollander sósu eða góða mjólkur sósu, setjið sósuna yfir fiskistöppuna og stráið rifnum osti yfir, brúnið í ofni við meiri yfirhita og berið fram með rúgbrauði og smjöri. 22.4.2009Innbakað Lambafille með villisveppafyllingu
Lamb: 2 meðal stór lambafille salt og pipar olía til steikingar 150 gr smjördeig 1 eggjarauða til penslunar
Sveppafylling: 100 gr villisveppir 50 gr furuhnetur 1 stk skalottlaukur ½ dl madeira ½ dl rjómi salt og pipar brauðraspur (ekki paxo)
Sveppir, laukur og hnetur er saxað mjög fínt. (hnetur ekki of fínt). Steikt á pönnu og madeira hellt saman við og soðið niður. Rjómanum bætt saman við og raspinum soðið þar til hæfileg þykkt er komin.
Lambafilleið er snyrt og brúnað á pönnu og kryddað. Kælið kjötið. Smjördeigið er gatað og kjötið sett ofan á það, fyllingunni smurt ofan á kjötið og smjördeiginu lokað með samskeytin undir kjötinu, penslið deigið með eggjarauðu. Bakað við 180°C og tekið út áður en kjötið er of steikt. Þetta tekur 15-25 mín eftir smekk. Flettingar í dag: 12 Gestir í dag: 3 Flettingar í gær: 27 Gestir í gær: 12 Samtals flettingar: 36877 Samtals gestir: 14665 Tölur uppfærðar: 14.3.2010 08:48:44 |
Velkomin í heimsókn á síðu Tiger Foods
Á þessari síðu eru vennjulegar mataruppskriftir.
